Þriðji þáttur af Úti
Í þættinum er farið yfir reynslu þeirra af því að koma sér í gang. Báðar hafa þær reynslu af því fara frá því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl.
Þriðji þáttur af Úti er kominn í loftið. Kristín tekur á móti góðri frænku, Sigríður Bára Ingadóttir, 2ja barna móðir, vélaverkfræðingur, og útivistarkona með meiru.
Í þættinum er farið yfir reynslu þeirra af því að koma sér í gang. Báðar hafa þær reynslu af því fara frá því að hreyfa sig lítið, vera of þungar, andlega og líkamlega yfir í að gera útivist að lífsstíl.
Í þættinum fást líka svör við spurningum sem bárust frá hlustendum eins og hvernig megi komast yfir óttann við vera hægastur, hvaða námskeið skal velja, hvernig maður öðlast sjálfstraust til að byrja og gefast ekki upp, hvernig maður heldur sér við eftir barnsburð og ábendingar um góða staða til þess að veiða maka. Takk fyrir komuna Sigga Bára.
Ef þú ert pepp fyrir Úti máttu endilega fylgja okkur á Instagram og segja vinum frá ÚTI. Það hjálpar mikið.
Áskorun vikunnar var að ferðast uppí Vífilstaðahlíð og að grjótvörðunni Gunnhildi, endilega taggið okkur ef þið hendið ykkur í þetta.
Ráð vikunar var að dúða sig ekki um of og að geyma eyrnaböndum og vettlingum á milli brjóstanna, en það má finna flenni fína vettlinga og útivistarvörur hjá Peloton.
Ps. Ef þig vantar eitthvað gott til að byrja á þá er Kristín farin af stað með fjallgöngunámskeið þar sem verður endað á að hendast yfir Fimmvörðuhálsinn. Ennþá séns að skrá sig og eins allskonar skemmtilegt í boði hjá Úti hreyfingunni og víðar.
PPs. Ef þú áttir eftir að hlusta á síðasta þátt, að þá er það ennþá í boði. Þar kom Guðrún Sóley og fór gírunina sem felst í því að troða sér í sjókajak.
– Búi og Kristín
Hlekkur á þættina sem eru komnir út:
Eru allir að hneykslast á hlunknum? - Kristín og Sigga Bára
90% meira næs með súkkulaði, Guðrún Sóley Gestsdóttir
Hvað er planið? - Fyrsti þáttur af Úti ævintýra hlaðvarpi
Ef þú vilt ekki fá fréttabréf frá okkur í framtíðinni þá endilega afskráðu þig af póstlistanum með hlekknum neðst í póstinum. Við sjáumst þá bara úti. 🌿
Add a comment: