Fréttabréf ÚTI (áður Hjólavarpið) logo

Fréttabréf ÚTI (áður Hjólavarpið)

Archives
Log in
Subscribe
June 10, 2026

90% meira næs með súkkulaði

Nýr þáttur af ÚTI er kominn í loftið!

Að þessu sinni fáum við til okkar Guðrúnu Sóley Gestsdóttur, kajakræðara, fjallakonu, náttúrunjótanda og dagskrárgerðarkonu. Guðrún segir frá sinni vegferð í hreyfingu og útivist, hvernig hreyfing og náttúra hafa orðið uppspretta orku og jafnvægis, og lýsir ástríðu sinni fyrir sjókajak sem hefur svo gott sem heltekið hana.

Þema þessa þáttar er að koma sér af stað í útivist. En Guðrún er vel til þess fallinn að ráðleggja um það að gíra sig í gang, enda með ólíkindum nennin, eins hefur hún spólað yfir sig í hreyfingu og þurft að finna taktinn aftur.🤸‍♂️

Ef þú ert pepp fyrir Úti máttu endilega fylgja okkur á Instagram og segja vinum frá ÚTI. Það hjálpar mjög mikið.

Hlusta á þáttinn!

Áskorun vikunnar var að ferðast (ganga, hlaupa, hjóla) í hrauni nálægt byggð, endilega taggið okkur ef þið hendið ykkur í þetta.

Ps. Ef þig vantar eitthvað gott til að byrja á þá er Kristín að fara af stað með fjallgöngunámskeið 22. júní þar sem verður endað á að hendast yfir Fimmvörðuhálsinn. Eins er alls konar í boði hjá Úti hreyfingu.

Pps. ef þig langar að prófa sjókajak þá eru byrjendanámskeið í fullum gangi núna í júní. Ef allt er orðið fullt, þá er sniðugt að senda þeim línu; þau eru líkleg til að bæta við námskeiðum.

– Búi og Kristín

Úti er í boði Peloton ævintýraverslunar, þar má finna alls konar varning sem hentar vel í útivist.


Ef þú vilt ekki fá fréttabréf frá okkur í framtíðinni þá endilega afskráðu þig af póstlistanum með hlekknum neðst í póstinum. Við sjáumst þá bara úti. 🌿

Don't miss what's next. Subscribe to Fréttabréf ÚTI (áður Hjólavarpið):
← Newer Þriðji þáttur af Úti Older → Hjólavarpið er komið á endastöð og Úti byrjar

Add a comment:

Posting this comment will subscribe you to this newsletter with the email address you enter.
www.instagram.com
utihreyfingin.is
Powered by Buttondown, the easiest way to start and grow your newsletter.