Hjólavarpið er komið á endastöð og Úti byrjar
Hjólavarpið hættir 🥲 Úti hlaðvarp byrjar 🥳
Sæl veriði,
TL;DR
Hjólavarpið hættir 🥲
Úti hlaðvarp byrjar 🥳
Eftir 69 þætti og tæplega 25 þúsund hlustanir er komið að endastöð. Það er skrýtið að skrifa þetta, því Hjólavarpið varð svo miklu stærri hluti af lífi mínu en ég gat gert mér grein fyrir í upphafi.
Hjólavarpið byrjaði í raun bara sem afsökun til að spyrja heimskulegra spurninga um hjólreiðar. Ég vissi lítið um hjól annað en að mér fannst gaman að hjóla og langaði að komast uppá hálendi á hjóli. Það var því alveg eðlilegt að fólk hugsaði: „Hver byrjar eiginlega hlaðvarp um hjólreiðar án þess að vita neitt?“
En kannski var það einmitt kryddið sem gerði þetta ætilegt. Að vera forvitinn og spenntur fyrir því að læra eitthvað nýtt. Frá fyrsta degi (kannski réttara að segja þriðja degi) tók hjólasamfélagið mér opnum örmum. Hvort svo sem það voru keppnishjólarar eða samgönguhjólarar.
Þetta verkefni fékk mjög fljótt sjálfstætt líf. Það leiddi mig á staði sem ég hefði aldrei planað að fara á; umhverfis Heklu, yfir Alpana og alls konar staði þar á milli.
Síðasti Hjólavarps þátturinn er ferðalag í gegnum það sem stendur upp úr hjá mér; nokkrar klippur úr eldri þáttum, smá nostalgía, augnablik sem sitja eftir.
Mig langar að þakka öllum sem komu að þessu. Öllum sem komu í þáttinn, hlustuðu, sendu skilaboð, peppuðu mig áfram og öllum styrktaraðilunum, sérstaklega ævintýrabúðin Peloton sem hefur verið með mér síðasta ár.
En eftir tvö ár af Hjólavarpinu er komið að næsta kafla og hlaðvarpsþættirnir ÚTI fara af stað.
ÚTI verður hlaðvarp um útivist í víðum skilningi; fjallamennsku, hjólreiðar, ferðalög, náttúru, ævintýri, hálendið og fólkið sem er alltaf úti. Með mér í þessu verkefni er Kristín Ýr Lyngdal peppmanneskja, fjallabraskari og útivistarkona sem mörg kannast eflaust við úr fjallahlaupa- og útivistarsenunni. Verkefnið er unnið í tengingu við Úti hreyfinguna sem hefur verið mikilvæg vogarstöng í að efla útivistarmenningu hér á landi og fá fleiri út að hreyfa sig og upplifa náttúruna
Fyrsti þátturinn af Úti er kominn í loftið og það er hellingur af spennandi hlutum framundan, sem sagt fleiri þættir 🔥
Ef þig langar að fá tilkynningu um nýja þætti getiru hent í follow inná þeirri hlaðvarpsveitu sem þú ert að nota.
Úti á apple podcast
Úti á spotify
Ef þú vilt fylgjast enn betur og meira með þá er Úti á Instagram þar sem má endilega fylgja okkur, það mun koma meira efni þarna inn.
Úti hlaðvarp verður gefið út á tveggja vikna fresti, þannig að næsti þáttur ætti að koma miðvikudaginn 10. júní, ef þú ert með ábendingar eða pælingar/spurningar máttu endilega senda mér/okkur línu. Úti tekur í raun yfir gamla kanalinn sem Hjólavarpið var á því geturu fundið alla gömlu þættina með því að rúlla aftur í tímann.
Ef þú vilt ekki fá svona póst máttu endilega afskrá þig hérna fyrir neðan “unsubscribe”, því ég vill ekki vera að bögga þig með einhverjum óþarfa upplýsingum, nóg er það nú samt.
Add a comment: