Fréttabréf ÚTI (áður Hjólavarpið) logo

Fréttabréf ÚTI (áður Hjólavarpið)

Archives
Log in
Subscribe
July 16, 2026

Fjórði þáttur

Nýr þáttur kominn í loftið - Þroskaferlar á fjöllum og þermistigið

Í þessum þætti taka Búi og Kristín stöðuna hvort á öðru og fara yfir ævintýri og ströggl síðustu daga.

Kristín segir frá þátttöku sinni í Úti naglanum, áskorun sem samanstendur af fjórum þrautum. Áskorun númer tvö átti að vera 60 km fjallahjólaferð um Skógarströnd, hvar Kristín ákvað að henda inn handklæðinu eftir 30 km. Hún fer yfir lærdóminn og persónuþroskann sem fylgdi því að segja stopp. Hún segir líka frá verkefni sem felst í því að ganga Snæfellsnesið þvert. Þar sem kúkaskóflan fékk loksins sína fyrstu notkun eftir fimm ár í bakpokanum.

Búi segir frá fyrstu þreyfingum á sjókayak og göngu sinni yfir Dalsheiði, af Snæfjallaströnd og yfir í Jökulfirði. Hvar vandræðalegt vikunnar átti sér stað, þar sem ein djúp köld gröf var fyllt.

Ef þú ert pepp fyrir Úti máttu endilega fylgja okkur á Instagram og segja vinum frá ÚTI, það hjálpar.

Hlusta á þátt númer 4!

Áskorun vikunnar var ferð útá flæðisker (t.d. Grótta) og vonandi til baka, góð ástæða til að kynna sér sjávarföllin áður en lagt er af stað. Eins og t.d. í sjávarfallatöflu Landhelgisgæslunar.

Náttúruperla vikunnar er Snæfjallaströnd á Vestfjörðum – hin hliðin á Ísafjarðardjúpi. Þar má m.a. finna Steinshús, þar sem Steinn Steinarr var eitthvað að bardúsa og Kaldalón sem Sigvaldi nokkur er kenndur við, frábær áfangastaður.

Ráð vikunnar var kærastinn, vatnsflaska sem hituð er upp og sett ofan í svefnpokann.

Ps. Ef þig vantar eitthvað í sjósportið er sniðugt að kíkja á https://www.villimadur.com/ þar má finna sjósund skó og vettlinga, auk þess eru að koma í hús tjöld frá Nortent. Hægt að fá 10% afslátt ef þú notar kóðann; UTIHLADVARP.

Pps. Ef þú áttir eftir að hlusta á síðasta þátt, að þá er það ennþá í boði. Þar kom Sigga Bára og fór yfir það að koma sér í gang.

– Búi og Kristín

Úti er í boði Peloton ævintýraverslunar, þar má finna alls konar varning sem hentar vel í útivist.

Ef þú vilt ekki fá fréttabréf frá okkur í framtíðinni þá endilega afskráðu þig af póstlistanum með hlekknum neðst í póstinum. Við sjáumst þá bara úti. 🌿

Don't miss what's next. Subscribe to Fréttabréf ÚTI (áður Hjólavarpið):
← Newer Hættulegur auðmælanlegur árangur Older → Þriðji þáttur af Úti

Add a comment:

Posting this comment will subscribe you to this newsletter with the email address you enter.
www.instagram.com
utihreyfingin.is
Powered by Buttondown, the easiest way to start and grow your newsletter.