Hættulegur auðmælanlegur árangur
Kæru vinir,
það er auðvelt að mæla ýmsa hluti. Einn bolli af hveiti, þyngd líkamans, vegalengdir, hraða og ýmislegt annað. Þeir hlutir sem einfalt er að mæla eiga það til að heltaka okkur, sérstaklega þau mælanlegu eindi sem snúa að frammistöðu okkar og líkama. Ekki afþví þeir eru til marks um áherslur okkar, heldur afþví þeir eru aðgengilegir.
Auðmældir hlutir, tengdir hreyfingu geta staðfest framvindu og þann árangur sem hefur fengist með æfingum. Árangursbætingarnar eru iðulega miklar og augljósar fyrst um sinn. Hraðinn eykst, vegalengdirnar lengjast og æfingunum fjölgar. Ástand sem er bæði ánægjulegt og auðvelt að ánetjast. Hreyfingardrifnir samfélagsmiðlar hjálpa líka, þar má halda utan um frammistöðubætingar og deila árangri með fylgjendum. Flest okkar ganga inn í þennan heim án þess að setja nokkur spurningamerki við þetta afreksdrifna umhverfi sem tekur á móti okkur. Við hlustum á heillandi og fallegt afreksíþróttafólk lýsa æfingum sem taka 20 klukkustundir í hverri viku og lýsa mataræði sem gæti verið frammistöðubætandi. Og hugsum með draumkenndum hætti til þess að eflaust gætum við gert betur með því að tileinka okkur eitthvað af því sem heimsmeistari síðasta árs gerði. Við hoppum á frammistöðulestina en það hægist hratt á þessari lest. Þegar lagt er af stað eru framfarirnar miklar og árangurinn áþreifanlegur milli vikna. En svo náum við endanum á þessari kröppu upphafs árangursbylgju og til að viðhalda bætingum krefst það aukins æfingarálags sem oft rýmist illa með vinnu og skildum hversdagsin, og hérna stöðnum við oft og afreksmiðað umhverfi hættir að þjóna okkur. Þú ert bara jafn ágætur núna og í síðasta mánuði er ekkert sérstaklega peppandi. Við missum móðinn eða stöldrum við og spyrjum „af hverju er ég að þessu“ sem óhjákvæmilega leiðir til næstu spurningar; „hvað veitir mér ánægju eða kemur í veg fyrir hana?“ Það eru í grunninn fá okkar sem erum fyrst og fremst keppnisfólk. Og því hætta frammistöðumælingar að halda okkur efnið. Enda eru fæst okkar sem byrja hreyfingar vegferð á fullorðinsaldri með það fyrir augum að verða fremst meðal jafningja. Umhverfið og mælikvarðin fékk að stýra því hvernig við nálgumst viðfangsefnið óháð því hvaða gildi við höfum og án þess að við fáum tækifæri til að velja mælikvarða/nálgun sem samræmist okkar gildum. Mörg okkar vilja eiga gæðastundir með vinum og upplifa náttúru. En fyrir þetta fæst ekki stig á Strava, né heldur er bjalla sem má hringja ef fólk átti innihaldsrík og hugvíkandi samtöl í Laugarvegs-hlaupinu.
Það fellur því í okkar skaut að finna hreyfingu og nálgun sem uppfylla þau gildi sem færa okkur hamingju. Því spyr ég er þín hreyfinga að veita fyllingu og/eða hverju gætir þú breytt þannig að hún væri meira í takti við það sem þér er kærast. Ef við erum keppnisfólk þarf ekkert endilega að pæla í þessu, aðgengilegir mælikvarðar og umhverfið hentar vel.
Viðmælandi fimmta þáttar var María Ögn útistelpa og hún hefur staldrað nokkrum sinnum við og spurt sig í ýmissa spurninga.
Hér getur þú hlustað á fimmta þátt af ÚTI:
María Ögn, leiðsagnarlífið og Rift
Peloton er frábær verslun þar sem má finna ýmislegt fyrir ævintýrin.
Það er hægt að finna allskonar skemmtilegar ferðir hjá Útihreyfingunni.
Það fæst 10% afsláttur hjá Villimanninum ef maður notar kóðann: UTIHLADVARP
Gangi ykkur sem allra best að vera aðeins úti.
Úti hlaðvarp er líka á instagram 👀
Ef þú vilt ekki fá póst, er einfalt að afskrá sig hérna fyrir neðan.
Add a comment: