Snjór í Esjuna og nýr Úti-þáttur
Hæ hæ, úti vinir!
Snjórinn er kominn í Esjuna og það þýðir bara eitt: broddarnir og höfuðljósin fram! Svo er nýr þáttur er kominn í loftið. Kristín tók á móti góðum gesti, Steinunni Helgadóttur.
Hlusta hér:
Kilimanjaro fyrir þrítugt - Steinunn Helgadóttir
Ath. Ef þið eruð að hlusta á þetta hjá okkur og fílið þetta þá væri algjör snilld ef þið followið þáttinn á þeirri streymisveitu sem þið eruð að hlusta á. Það gerir svaka mikið fyrir algóriðmann og gerir okkur kleyft að selja auglýsingar og halda þessu lifandi. Eins að mæla með þessu við vin eða vinnufélaga.
Úti á spotify
Úti á apple podcast
🎙️ Í þættinum
Steinunn varð þrítug í ágúst, hún er jarðfræðingur með meistaragráðu frá Helsinki í umhverfisbreytingum á Norðurslóðum og starfar sem náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni. Þar vaktar hún jarðskjálfta, eldfjöll og flóð, og fer reglulega út á svalir til að meta skýin.
Í febrúar gekk Steinunn á Kilimanjaro með besta vinkonu sinni, níu daga með hópi íslendinga og fylgdarliði. Upphaflega markmiðið var að ná þessu fyrir 25 ára aldur, en fyrir þrítugt er líka flott. Hún hafði kviðið fyrir hæðarveiki en lenti í allt öðru. Hún fékk fimm daga stíflu. Komst hún á toppinn við sólarupprás? Á leiðinni niður losnaði allt. Við segjum ekki meira, þið verðið að hlusta. 😅
Næst á dagskrá hjá Steinunni er Machu Picchu í maí. Óskum henni alls hins besta í næstu ævintýrum.
🌍 Fréttir vikunnar
Breski ævintýramaðurinn Karl Bushby er kominn heim eftir 28 ára ferðalag. Hann gekk og synti rúmlega 48.000 km frá Chile til Bretlands án þess að nota farartæki.
Kristín stóðst jöklaleiðsögunámskeiðið! 🎉
🏔️ Náttúruperla vikunnar: Snæfellsjökull og nágrenni
💪 Áskorun vikunnar: Út í vonda veðrið
💡 Ráð vikunnar: Sokkur yfir skóinn
Ef þú átt ekki brodda og það er hálka þá er hægt að setja sokk yfir gönguskóinn. Þetta trix lærði Steinunn af aðstoðarmanni sínum á Kilimanjaro og það virkaði vel.
🚙 BL
Búi brunaði norður á Húsavík á rafjepplingi frá Hongqi. Hann var hljóðlátur og mjúkur á veginum.
Svo er það villimaðurinn fyrir sjó- og vatnaútbúnað.
🎧 Síðustu þættir
Takk fyrir að hlusta!
Sjáumst úti 🧡
Kristín og Búi
Add a comment: